Það sunnudagabréf
vors Drottins Jesú Krists, sem opinberað var í Mikaelsborg.
Í einum stað hangir eitt bréf, svo enginn maður af veit, hvar á hangir, með forgylltum bókstöfum skrifað, og er af Guði fyrir engilinn Mikael ofan sent. Hver sem þettað bréf vill til sín taka, sá hinn sami finnur það, en hver sem seilist eður grípur eftir því, frá honum líður það og flýr í burt.
Sjáið það bréf, sem fyrir engilinn Mikael er befalað og til sent. Hver sem á sunnudögum vill erfiða fyrir góss og peninga, sá er forbannaður, og þar fyrir býð ég yður að þér um sunnudaga ekkert erfiði hafið, heldur með öðrum kostgæfilega gangið til kirkjunnar, Guðs orð að heyra. Þér skulið af yðar kennidómi þeim arma, auma og lúna þar með auðsýna að þér trúið á mig. Þér skulið ei prýða né krýsa yðar hár til drambsemi, þar með að gjöra syndir. Þettað bréf er skrifað með minni eigin hendi og frá mér Jesú Kristí útsent, og að þér gjörið ei sem þau vitlausu dýr. Þér hafið sex daga í vikunni að útrétta yðar erfiði, en sunnudaginn skulið hér helgan halda, ganga til kirkjunnar, Guðsorð að heyra, biðja fyrirgefningar á yðar syndum, að þær mættu yður forlátnar verða. Hafið ei lyst á silfri og gulli. Gjörið ekkert vont í mínu nafni, hvorki líkamlegan lysting né ágirnd. Baktalið ekki yðar náunga. Svíkið ekki þann auma. Útsvallið ei yðar ríkdómi. Heiðrið föður og móður og yðar náunga. Svo gef ég yður frið og heilbrigði. Hver sem ei hefur þessa trú, sá er fortapaður, og hver þessu bréfi ei trúir hann er fordæmdur, og hefir ei lukku né blessan. Ég segi yður kæru bræður, þetta bréf hef ég Jesús Kristur með minni Guðdóms hendi skrifað. Hver sem hér á móti mælir, sá er af mér yfirgefinn, og skal ekki hafa hjálp af mér. Hver sem þetta bréf á og opinberar ekki, hann er forbannaður, af kristilegri kirkju, og þetta bréf skal hver eftir öðrum skrifa. Þó þeir hafi gjört svo margar syndir sem sandur á sjávarströndu, lauf á trjánum, gras á jörðinni, þá skulu þær yður fyrirgefnar verða. Hver þessu bréfi ei trúir, hans börn skulu eilíflega deyja. Umvendið yður, annars skulið þér eilíflega pínast í Helvíti. Hver sem þetta bréf í sínu húsi hefur, eður á sér ber, hann skal hvorki skrugga né veður slá, og fyrir eldi og vatni hjálplegur verða. Hver sem helst þetta bréf hefir í húsi sínu eður á sér ber, hann skal fá gleðilega velgengni í þessum heimi. Haldið mín boð, sem ég hefi fyrir minn engil Mikael sent og opinberað. Ég sá sannorði Jesús Kristur með minni Guðdóms hendi skrifað hefi.