4.kafli.
.. Verður efni þá eytt eða ekki?
22) Frelsarinn mælti, Öll náttúran, öll fyrirbæri, allar verur lifa í og með hvert öðru og þau munu aftur leysast upp í eigin rætur.
23) Því að náttúra efnis leysist upp í rótum eigin náttúru einnar.
24) Sá sem hefur eyru til að heyra, látið hann heyra.
25) Pétur sagði við hann, Þarsem þú hefur útskýrt allt fyrir okkur, segðu okkur þá þetta líka: Hver er synd heimsins?
26) Frelsarinn sagði; Það er engin synd, en það eruð þið sem búið til synd þegar þið gerið hluti sem eru líkrar náttúru og framhjáhald, sem kallað er synd.
27) Þessvegna kom Hið Góða inní hóp ykkar, til kjarna allrar náttúrunnar, til þess að endurbyggja hann til síns eðlis/róta.
28.) Þá hélt hann áfram og mælti; Það er þessvegna sem þið verðið veik og deyið, því að þið eruð án þess/svipt því, sem læknar ykkur.
29) Sá sem hefur hug til að skilja, látið hann skilja.
30) Efnið fæddi af sér ástríðu sem á sér engan jafningja, sem sprettur af einhverju sem er í mótsögn við náttúruna. Af því rís ókyrrð í öllum líkama hennar.
31) Því segi ég við yður; Verið vel huguð og ef þið óttist, verið þá hughreyst af nærveru allra fyrirbæra náttúrunnar.
32) Sá sem hefur eyru til að heyra, látið hann heyra.
33) Þegar Hinn Blessaði hafði sagt svo, heilsaði hann þeim öllum og sagði; Friður sé með ykkur. Takið við friði mínum í sjálfum ykkur.
34) Varið ykkur á því að enginn leiði ykkur afvega með því að hrópa Jó hér eða jó þar! Því að Mannssonurinn er innra með yður.
35) Eltið Hann!
36) Þeir sem leita Hans munu finna Hann.
37) Farið því og predikið guðspjall Konungsríkissins.
38.) Setjið ekki neinar reglur umfram þær sem ég gaf ykkur og notið ekki lög einsog dómskerfið, nema þið umberið að vera heft af þeim.
39) Meðan Hann mælti svo hvarf Hann á braut.
5.kafli
1) En þau voru hrygg. Þau grétu ákaflega og sögðu; Hvernig getum við farið til hinna vantrúuðu og predikað guðspjallið um Konungsríki Mannssonarins? Ef þau þyrmdu honum eigi, hvernig eiga þau þá að þyrma okkur?
2) Þá stóð María upp, heilsaði öllum og sagði við systkyn sín; Grátið eigi og syrgið eigi né verið ráðalaus því að Hans náð mun verða með ykkur í heilindum og mun vernda ykkur.
3) En frekar skulum við lofa mikilfengleika Hans því að hann hefur undirbúið okkur og gert okkur að Mönnum.
4) Þegar María mælti svo sneri hún hjörtum þeirra til Kærleikans/Hins Góða og þau byrjuðu að ræða um orð Frelsarans.
5) Pétur sagði við Maríu; Systir, við vitum að Frelsarinn elskaði yður umfram rest kvenna.
6) Segðu okkur af orðum Frelsarans, sem þú manst, semt þú þekkir en sem við gerum ekki, né höfum við heyrt þau.
7) María svaraði og sagði; Það sem er ykkur hulið mun ég nú lýsa yfir við yður.
8.) Og hún byrjaði að mæla við þau þessi orð; Ég, sagði hún, Ég sá Drottinn í sýn og ég sagði við Hann, Drottinn ég sá þig í sýn í dag. Hann svaraði og sagði við mig:
9) Blessuð sért þú fyrir að hafa ekki vikið undan augliti Mínu. Því að þar sem hugurinn er, þar er fjársjóðurinn.
10) Ég sagði við Hann; Drottinn, hvernig getur sá sem sýnina fær séð hana, gegnum sálina eða gegnum andann?
11) Frelsarinn svaraði og sagði; Hann sér hvorki gegnum sálina eða andann, heldur gegnum hugann sem er milli þeirra tveggja, sem er sá sem sér sýnina og it is…..
svo er þetta næstum búið, nú vantar næstu blaðsíður í öll handrit sem fundist hafa og þráður Maríu Magdalenu ekki tekinn upp aftur fyrren í áttunda kafla, þá er hún að lýsa ferðalagi sem sál hennar/einhvers fór greinilega í, til allskonar máttarvalda. Ég syrgi þær upplýsingar sem vantar hingað, beint á eftir mögnuðum uppljóstrunum Maríu um Guð og Hugann.
(bls.11-14 vantar)
8.kafli.
10) Og girndin sagði; Ég sá þig ekki stíga niður en þó sé ég þig nú stíga upp. Hversvegna lýgur þú fyrst að þú tilheyrir mér?
11) Sálin svaraði og sagði; Ég sá þig. Þú sást mig ekki né þekktirðu mig Ég þjónaði þér sem flík og þú þekktir mig ekki.
12) Og þegar hún sagði þetta, fór sálin ákaflega fagnandi á brott.
13) Aftur kom hún að þriðja aflinu, sem kallað er vanþekking.
14) Aflið yfirheyrði sálina og sagði, Hvert ert þú að fara? Í illsku ertu bundin. Þú ert bundin; dæmdu eigi.
15) Og sálin sagði; Hversvegna dæmirðu mig þegar ég hef ekki dæmt?
16) Ég var bundin, þó að ég hafi ekki bundið.
17) Ég þekktist eigi. En ég hef öðlast skilning á því að Hið Heila er að leysast upp, bæði hinir jarðnesku hlutir og himnesku.
18.) Þegar sálin hafði sigrað þriðja aflið hélt hún uppávið og sá fjórða aflið, sem hafði sjö ásýndir.
19) Fyrsta ásýndin er myrkur, önnur girnd, þriðja vanþekking, fjórða er ótti við dauðann, fimmta er konungsveldi holdsins, sjötta er fíflsleg speki holdsins, sjöunda er speki reiðinnar. Þessar eru hinar sjö ásjónur reiðinnar.
20) Þær spurðu sálina; Hvaðan kemur þú vegandi manna, eða hvert ertu að fara, sigurvegari rýmisins?
21) Sálin svaraði og sagði; Það sem bindur mig hefur verið vegið og það sem sneri á mig hefur verið sigrað,
22) og girnd mín hefur tekið enda og vanþekkingin er dauð.
23) Á einni aeon var ég frelsuð af heiminum, einsog Gerð af gerð og frá fjötri algleymis sem er transient.(úps sorrí, gengur altumvefjandi eða ísmjúgandi?)
24) Frá þessari stundu mun ég öðlast restina af tímanum, af árstíðunum, af aeons, í þögn.
9.kafli
1) Þegar María hafði mælt þetta féll á hana þögn, þarsem það var uppað þessum punkti sem Frelsarinn hafði talað við hana.
2) En Andrés svaraði og sagði við systkynin; Segið það sem þið viljið um það sem hún hefur sagt. A.m.k trí ég ekki að Frelsarinn hafi sagt þetta. Því að vissulega eru þessar kenningar furðulegar hugmyndir.
3) Pétur svaraði og gaf sitt álit varðandi þessa sömu hluti.
4) Hann spurði þau um Frelsarann; Talaði hann virkilega einslega við konu og ekki opinberlega við þau? Eigum við öll að snúa okkur að henni og hlusta? Kaus hann hana umfram okkur?
5) Þá grét María og sagði við Pétur; Pétur minn bróðir, hvað heldur þú? Heldur þú að ég hafi skáldað þetta sjálf í hjarta mínu, eða að ég sé að ljúga um Frelsarann?
6) Levi svaraði og sagði við Pétur; Pétur, þú hefur alltaf verið skapbráður.
7) Nú sé ég þig keppa við konuna einsog andstæðingarnir.
8.) En ef að Frelsarinn gerði hana verðuga, hver í ósköpunum ert þú þá að hafna henni?
9) Þessvegna elskaði hann hana meira en okkur hin. Verum heldur skömmustuleg og setjum upp (grímu hins) hinn fullkomna Mann, aðskiljumst einsog Hann fyrirskipaði okkur og predikum guðspjallið, leggjum ekki niður neinar reglur eða nein önnur lög umfram það sem Frelsarinn hefur sagt.
10) Og þegar þau heyrðu þetta héldu þau af stað til að lýsa yfir og predika.