Ég var að setja inn hérna til hliðar bók # 2 úr hinu æsilega kristna fornriti “Hirðir Hermasar” eða The shepherd of Hermas. Ég á ennþá eftir að klára síðustu tvo kaflana. Í fyrradag átti ég sko bókstaflega bara eftir nokkur orð þegar öll skjöl með þessu efni, sem og backup sem ég tók af þeim, ákváðu alltíeinu að verða lasin (fengu í alvörunni einhvern vírus, skil ekki hvernig það gat gerst bara fyrir þau…) og það sem ég var búin að vera að vinna í síðustu daga eyðilagðist. Ég er staðráðin í að klára þetta einn daginn, en þangað til ég nenni því þá verður það sem komið er bara að duga
p.s það verður hjúds afrek að klára þetta því að það er frekar leiðinlegt að þýða þetta rit, þó að það sé mjög skemmtilegt aflestrar.