Viskustykkið — fyrrum þekkt sem Mímisbrunnur











{mars 31, 2010}   Gamall bænarsálmur

Hann er mjög flottur, ég fann hann í þessu handriti.
Erindin eru eiginlega einsog litlar bænar.

Bænarsálmur

Lagið: Óvinnanleg borg er vor Guð

Leiði mig höndin líknsöm þín,
lækni mig blóð þitt rauða.
Hjálpi mér öll þín heilög pín
og huggi í sorgum nauða.

Ljúfi lausnarinn minn
leggst ég í faðminn þinn,
vertu mín vernd og skjól,
vegur, hlífð, ljós og sól
og líkn í lífi og dauða.

Ó Jesú taki það allt mér frá
sem þig kann helst að styggja.
Ó Jesú lát mig aftur fá
af mér sem viltu þiggja.
elsku, trú, iðran með,
auðmýkt og þolugt geð.
Æ láttu anda þinn
ástkæri Jesú minn
í mínu brjósti liggja.

Nær sem ég veikur hrasa hér,
hjálpa mér upp að standa,
haltu mér fast við hönd á þér,
hættu lát aungva granda.
Trú mína tendra og nær,
trúfasti Jesú kær.
Ádreifðu öndu mín,
ilmsætu blóði þín,
og hugguns heilags anda.

Nú vil ég hjartans feginn fá
friðland blessunarinnar,
og eilíflega þitt auglit sjá
unnustinn sálar minnar.

Kom Jesús, kom til mín,
koma lát mig til þín,
og syngja sjálfum þér sætt lof
með englaher
við hátrón hátignarinnar.

Amen.



Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

o.s.frv.
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.