Viskustykkið — fyrrum þekkt sem Mímisbrunnur











{mars 25, 2010}   Heilagur Frans frá Assísí

Eftirfarandi kafli er úr bók um hann sem heitir The little flowers of St.Francis;

16.kafli

Hvernig Heilagur Frans fékk ráðgjöf Heilagrar Klöru, og hins heilaga Sylvesters munks; og hvernig hann með predikunum frelsaði mikið af fólki, og stofnaði Þriðju Regluna og predikaði fyrir fuglunum og fékk svölurar til að þegja á meðan.

Stuttu eftir að hann tók trú, hinn auðmjúki þjónn Krists, Heilagur Frans, sem hafði þegar safnað til sín mörgum fylgismönnum og vígt þá inní Regluna, var hann eitt sinn mjög kvíðinn og í miklum efa um það hvað hann ætti eiginlega að gera; hvort hann ætti að helga sig bæninni að fullu eða stunda það líka að predika; og varðandi þetta mál þá þráði hann mjög að vita vilja Guðs; og vegna hinnar guðdómlegu auðmýktar sem hann bjó yfir þá treysti hann ekki fyllilega sjálfum sér né sínum eigin bænum , og sóttist því eftir að fá að vita vilja Guðdómsins gegnum bænir annarra; þessvegna kallaði hann til bróður Masseo og sagði við hann; “Farðu til Systur Klöru og segðu henni í mínu nafni að hún eigi, ásamt nokkrum af andlegustu fylgismönnum sínum, að biðja innilega til Guðs, að hann leyfi að mér sé sýnt hvort að betra sé að ég gefi mig að því að predika eða að bænahaldi eingöngu. Og þar á eftir skaltu fara til bróður Sylvesters og segja honum að gjöra eins.” Nú hafði það átt sér stað í heiminum að “Messer” Sylvester hafði séð kross af gulli ganga út af munni Heilags Frans, nógu háan til að ná til himna og nógu breiðan til að ná milli endimarka jarðar; og þessi bróðir Sylvester var svo rosalega guðhræddur og svo hrikalega heilagur að með bæninni hlaut hann náð hjá Guði og hann fékk allt sem hann bað um, hann talaði oftsinnis við Guð; og þessvegna tók Heilagur Frans mikið mark á honum. Bróðir Masseo hélt af stað og samkvæmt skipun Heilags Frans fór hann fyrst með bón sína fyrir Heilaga Klöru og þar á eftir til Bróðurs Sylvester; sem gaf sig bæninni á vald um leið og honum bárust boðin, og á meðan hann var enn að biðja fékk hann Guðdómlegt svar, svo hann sneri sér að Bróður Masseo og sagði; “Svo boðar Guð þér að tala við Bróður Frans; Guð hefur ekki kallað hann til þessa veldis fyrir hann sjálfan eingöngu, heldur til þess að hann uppskeri ávöxt margra sálna og að fyrir hann megi margir frelsast”. Og að þessu loknu hélt bróðir Masseo á ný til heilagrar Klöru, til þess að vita hvaða svar hún hefði hlotið frá Guði; og hún svaraði að þær hefðu fengið sent hið sama svar frá Guði og það sem Bróðir Sylvester fékk. Að því búnu hélt Bróðir Masseo aftur til Heilags Frans og Heilagur Frans tók á móti honum með miklum virktum, þvoði fætur hans og lagði mat á borð fyrir hann. Og þegar hann hafði lokið við að matast kallaði Heilagur Frans á Masseo að koma inní skóg með sér; og þar kraup hann á kné frammi fyrir honum, krosslagði hendurnar á brjósti sér og spurði; “Hvað býður minn Drottinn Jesús Kristur mér að gjöra?” Bróðir Masseo svaraði; “Bróður Sylvester, systir Klara og allir hennar félagar hafa fengið sama svar frá Kristi og opinberað að vilji hans sé sá að þú farir um heiminn til að predika, því að Hann hefur ekki valið þig eingöngu vegna sjálfs þín heldur líka til þess að stuðla að frelsun annarra”. Þegar heilagur Frans hafði fengið svarið og vissi þarmeð vilja Jesú Krists, reis hann á fætur og sagði með miklum ákafa; “Höldum af stað í nafni Guðs”; og hann tók með sér félagana Bróður Masseo og Bróður Agnolo, heilaga menn. Þeir lögðu af stað með óþreyjufullum anda, án þess að hugsa útí það hvaða átt eða stíg þeir ættu að taka, og þeir komu að þorpi, umgirtu vegg, sem kallast Savurniano; og Heilagur Frans byrjaði að predika þar; en fyrst bað hann svölurnar sem voru þar á fullu að tísta, að hafa þögn þangað til hann væri búinn að predika; og svölurnar hlýddu honum; og þarna predikaði hann af mikilli innlifun svo að allir menn og konur í bænum fengu þá hugmynd að fylgja honum og yfirgefa bæinn; en Heilagur Frans leyfði það ekki, en sagði; “Verið ekki svona fljót að fara burt, ég mun fyrirskipa hvað er rétt af yður að gjöra svo að sálir yðar frelsist”; og svo bauð hann þeim að koma á fót hinni Þriðju Reglu fyrir alheimsfrelsun allra manna; og svo skildi hann við þau með mikilli huggun, svo hugum þeirra var snúið til iðrunar, {ég skil ekki afganginn af setningunni og verð að sleppa henni – sorrí} Og hann hélt förinni áfram, fullur af ákafa, og Frans lyfti augliti sínu og sá trjákrónurnar við veginn, og í þeim sátu næstum óteljandi fuglar. Heilagur Frans dáðist að þeim, og hann sagði við félaga sína; “Þér skuluð bíða mín hér við veginn, en ég mun fara og predika fyrir fuglana, systurnar mínar.” Og hann fór inná engið og hóf að predika til fuglanna sem sátu á jörðinni, og þeir sem sátu í trjánum komu til hans, og allir stóðu þeir saman og voru þögulir þangað til Heilagur Frans hafði lokið við predikunina; og jafnvel þá héldu þeir ekki á brott fyrren hann hafði blessað þá; og samkvæmt því sem Bróðir Masseo greindi Bróður James af Massa frá seinna, þá hreyfðu fuglarnir sig ekki á meðan Heilagur Frans gekk á milli þeirra og snerti þá með yfirhöfn sinni. En predikun Heilags Francisar var á þessa leið; Systur mínar fuglarnir, mikið skuldið þér Guði skapara yðar, því skulið þér alltaf og allsstaðar kappkosta að lofa Hann, því að hann hefur gefið yður frelsi til þess að fljúga hvert sem yður lystir, og hefur veitt yður dýrindis klæðnað. Ennfremur varðveitti hann yður í örkinni hans Nóa, svo að stofni yðar yrði ekki útrýmt. Og auk þess eruð þér skuldbundnar Honum fyrir loft-elementið, sem hann hefur skipað ykkur yfir; og þið þurfið ekki að sá jörðina né yrkja hana, heldur veitir Guð fæðuna og gefur ykkur læki og lindir til þess að drekka úr; Hann gefur yður fjöll og dali svo að þið getið leitað skjóls, og há tré þarsem þið getið búið til hreiður; og vegna þess að þið kunnið hvorki að sauma né spinna, þá sér Guð um að klæða ykkur og ungana; þessvegna elskar Skaparinn yður, afþví að hann gefur ykkur svo margt. Sýnið aðgát, systur mínar fuglarnir, að þér forðist synd vanþakklætisins, lofið Guð ætíð í huga yðar.” Er Frans hafði mælt þessi orð, þá byrjuðu allir fuglarnir að opna goggana og að teygja hálsana, og opna vænghafið og þeir lutu höfðum sínum í auðmýkt til jarðar og sýndu með bendingum sínum og söng að heilagi faðirinn veitti þeim mikla gleði; og Heilagur Frans fagnaði með þeim og var kátur og dáðist mjög að hinni miklu fuglafjöld, og að fjölbreytninni þar í, og að einbeitningu þeirra og óttaleysinu; og fyrir það lofaði hann Skaparann innilega. Þegar hann hafði loksins lokið við að predika, þá signaði Heilagur Frans yfir þeim og gaf þeim leyfi til að halda á brott; og við það flugu fuglarnir allir uppí loftið með undurfögrum söng, og í líki krossins sem Frans hafði gert yfir þeim, þá skiptu þeir sér í fjóra flokka og einn flaug í austur, annar í vestur, enn einn í átt til suðurs og hinn fjórði til norðurs, og hver flokkur söng dýrindis ljóð; og merktu þarmeð að einsog merkið sem Frans hafði gjört yfir þeim, þá myndi predikun krossins sem Frans hafði lesið yfir þeim, dreifast um heiminn til allra átta, með honum og bræðrum hans; en bræðurnir, einsog fuglar, eiga ekkert sem er þeirra eigið í þessum heimi, heldur treysta þeir Guði algjörlega fyrir umsjón lífs síns.



Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

o.s.frv.
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.