Viskustykkið — fyrrum þekkt sem Mímisbrunnur











{febrúar 12, 2010}   Krúttleg kristin saga; af hinni heilögu meyju Margréti.

Hin heilaga Margrét af Antíokkíu er einn frægasti og mest dýrkaði dýrlingurinn í kaþólskum sið. Hún er talin sérstakur verndari barnshafandi kvenna og tengist mjög málefnum kvenna og barneignum (þó að hún sé vitaskuld dýrkuð og virt almennt fyrir að hafa fórnað lífinu fyrir meydóm sinn – ekkert slær út íðilfagra hreina mey ). Saga hennar var lesin yfir konum í barnsnauð, og eins þótti bara gott að hafa söguna inni hjá konum á meðan á fæðingum stóð. Sama er talið að hafi gilt um Oddrúnargrát í heiðni. En heilaga Margréti mátti ákalla útaf allskonar öðrum vandræðum og erfiðleikum, þessvegna var hún agalega vinsæl.

Margrét var bara barn að aldri þegar hún hlaut píslarvætti fyrir trú sína á Krist. Hún er sögð hafa verið uppi á fjórðu öld. Á meðan hún hlaut hinar ógurlegu og langvarandi píslir sínar þá tókst henni samt sem áður að drepa drekann sem er oft sýndur með henni á listaverkum, og hún batt líka og niðurlægði engan annan en sjálfan Belsebúbb, djöflaprinsinn ógurlega. Þetta bendir allt til þess að saga hennar sé mjög spennandi og svo er!

Ég fann söguna loksins í handriti frá 19.öld (mjög auðlesnu) og skrifaði hana upp í gær. Mig var búið að langa til þess að lesa hana lengi.

Til þess að gera allt auðveldara þá lagfærði ég stafsetninguna og gerði málfarið flottara. Það var það eina sem þurfti að laga og breytir þannig séð engu (nema til batnaðar)

Söguna í heild sinni finniði hér til hliðar.

Njótið vel :)



Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

o.s.frv.
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.